Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Zontaklúbbur Akureyrar

Zontaklúbbur Akureyrar var stofnaður 4. desember 1948 en stofnskrá fengin 2. júlí 1949.
Stofnfélagar Zontaklúbbs Akureyrar og gestir

Stofnfélagar voru 15 og eru þeir ásamt nokkrum gestum á myndinni. 
Félagar voru lengi vel 18-20 talsins, árið 1975 hafði fjölgað í 29 félaga og árið 1984 eru 36 í klúbbnum og síðan hafa félagar verið eitthvað á fjórða tuginn og voru í september 2008 orðnir 38.

Fundir
Flestir fundir eru haldnir í fundarsal klúbbsins í Zontahúsinu, Aðalstræti 54, þriðja miðvikudag hvers mánaðar frá september til maí og hefjast þeir kl. 20 utan einn sem haldinn er á vinnustað einhvers félagans og annar sem er sameiginlegur með Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu.

Fréttir

Undir lok starfsársins 2011-2012

Starfsárið 2011-2012 hefur þotið áfram. Fyrst var umdæmisþingið sem haldið var í Hofi á Akureyri snemma í september og undirbúningur fyrir það með Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu.
Þegar gestirnir yfirgáfu bæinn tók hversdagurinn við. Þema starfsársins var í þetta sinn menningarlegt og voru kynntar bókmenntir á nokkrum fundum. Sólveig Jónsdóttir aðjúnkt við Háskólannn á Akureyri og félagi í ZA kynnti rannsóknir sínar á því hvernig börn læra að lesa og tjá sig með því að nota hið ritaða orð og myndir. Í febrúar kom Brynhildur Þórarinsdóttir, dósent við kennaradeild HA, og sagði okkur frá barnabókum og hvernig vekja má áhuga ungviðsins á fornri menningu þjóðarinnar. Í mars sögðu tveir félagar okkur hinum frá skáldverkum Kristínar Marju Baldursdóttur, einkum þeim sem fjalla um listakonuna Karitas. Í apríl var sagt frá Jakobínu Sigurðardóttur og verkum hennar sem og bókinni Mannvist eftir fornleifafræðinginn Birnu Lárusdóttur. 
Á aprílfundi fögnuðum við kosningu séra Agnesar M. Sigurðardóttur í embætti biskups Íslands þá fyrr um daginn og óskum við henni velfarnaðar í embættinu um komandi ár.  
Með vorkveðjum frá vefritara klúbbsins, Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur

Litríkt ár liðið

Guðrún Kristinsdóttir, formaður ZA á sameiginlega fundinum 2010

Í byrjun síðasta starfsárs (2010-2011) ákvað stjórn ZA að hver fundur hefði sinn einkennislit og voru félagar hvattir til nýta sér litinn er þeir byggju sig á fundinn.
Minnt var á lit eða mynstur fundarins í fundarboði og síðan kom að því að finna eitthvað af skárri fötunum sem kæmi til greina. Vefritari klúbbsins komst t.d. að því að úrval hans af appelsínugulum fötum voru einir baðmullarsokkar, kvennahlaupsbolur úr polýester sem gengi ekki, en hagur hans vænkaðist til muna er hann tók eftir appelsínugulum blómum er skrýddu forntískublússu er hann hafði keypt lítið notaða og vel með farna á markaði sumrinu áður.
Á sameiginlega fundinum sem haldinn var á Hótel Natur á Þórisstöðum, þar sem einn félaginn ræður ríkjum, var einkennisliturinn fjólublár og gekk það jafnt yfir okkur og félaga okkar í Þórunni hyrnu. Veitt voru verðlaun fyrir flottustu fjólubláu búningana sem reyndust vera kjóll Sigfríðar Ingu og búningur Ragnheiðar Gestsdóttur og önnur fyrir snjalla lausn á fjólublámanum en þau hreppti Fjóla og sjást vinningshafar hér að neðan.

Þótt stundum steingleymdi maður að það væri einkennislitur og mætti bara í svörtu og hvítu þá var þessi litadýrð skemmtileg tilbreyting en að árinu loknu andar maður léttar og mætir aftur í sínum mestmegnis svarta fundabúningi.

 

Lesa meira

Kynning á klúbbnum

Á kynningarfundi Guðrún formaður segir frá

Í vetur hefur Zontaklúbbur Akureyrar unnið að því að fá nýja félaga í hópinn því rétt eins og helstu nytjastofnar hafsins þá þarf klúbbur á sjötugsaldri sífellt að huga að nýliðun.
Í marsbyrjun samdi stjórn klúbbsins og nýklúbba- og starfsgreinanefnd kynningarbréf sem félagar voru beðnir um að senda til kvenna sem þeim þætti fengur af að fá í hópinn.

 

 

Lesa meira

Vinnustaðafundur í janúar

Einn fundur á vetri er haldinn á vinnustað einhvers félagans og þann 20. janúar var boðað til fundar í Rannsóknahúsinu í Borgum þar sem Háskólinn á Akureyri og margar aðrar stofnanir eru til húsa. Fundurinn var haldinn á bókasafni Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar Íslands þar sem ég, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir starfa sem sveppafræðingur. Þaðan lá leiðin niður um eina hæð þar sem Fjóla Björk Jónsdóttir aðjúnkt við Viðskipta- og raunvísindasvið HA og Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir forstöðumaður RHA, Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar HA kynntu starf sitt. Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning