Flýtilyklar
Rósanæludagurinn 8. mars 2008
Stígamótum afhent söfnunarféð
Á kvennadaginn, 19. júní, afhenti Guðrún Hansdóttir, fyrir hönd Zonta á Íslandi, Guðrúnu Jónsdóttur, talskonu Stígamóta, söfnunarfé fyrir rósanælusölu Zontaklúbba á Íslandi sem fór fram í byrjun mars. Rúmlega tíu þúsund rósanælur seldust yfir eina helgi og verður söfnunarfénu varið til verkefnisins Stígamót á staðinn sem nýtist fólki utan höfuðborgarsvæðisins og gerir starfsfólki Stígamóta kleift að verða sýnilegri úti á landsbyggðinni.
