Kynning á klúbbnum
Í vetur hefur Zontaklúbbur Akureyrar unnið að því að fá nýja félaga í hópinn því rétt
eins og helstu nytjastofnar hafsins þá þarf klúbbur á sjötugsaldri sífellt að huga að nýliðun.
Í marsbyrjun samdi stjórn klúbbsins og nýklúbba- og starfsgreinanefnd kynningarbréf sem félagar voru beðnir um að senda til kvenna sem
þeim þætti fengur af að fá í hópinn.
Það var svo undir hádegi þann 20. mars að nokkrar konur mættu á
kynningarfund í Zontahúsi þar sem boðið var upp á kaffi og veitingar og nokkrir félagar sýndu á sér betri hliðina og sögðu
frá reynslu sinni af því að starfa í klúbbnum og lýstu því fjálglega hvernig það væri að vera í
þessum úrvalsfélagsskap. Formaður klúbbsins, Guðrún M. Kristinsdóttir, fór yfir það helsta í starfinu og Ragnheiður
Hansdóttir varaumdæmisstjóri lýsti því hvernig Zontahreyfingin væri uppbyggð allt frá klúbbum og upp til Zonta
International. Um leið lýsti hún markmiðum starfs Zonta og hvernig klúbbar legðu sitt að mörkum til starfs á alþjóðavettvangi.
Konurnar sögðu okkur svo af starfi sínu og fyrr en varði var kynningarfundurinn á enda og allir fóru glaðir heim.
Á aprílfundi klúbbsins upplýsti formaður að á maífundi myndu þrír nýir félagar bætast í hópinn og má því segja að kynningin hafi heppnast framar vonum.