Sýning um líf og störf Nonna opnar í Þjóðarbókhlöðunni
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, opnaði sýninguna Pater Jón Sveinsson - en kallaðu mig Nonna í
Þjóðarbókhlöðunni í dag, en í haust verða 150 ár liðin frá fæðingu Nonna.
Zontaklúbbur Akureyrar vann sýninguna og stjórnaði Brynhildur Pétursdóttir, safnstjóri í Nonnahúsi, því verki.
Sýningin lýsir í máli og myndum ævi Jóns Sveinssonar - Nonna, frá því hann fæddist 16. nóvember 1857 á
Möðruvöllum í Hörgárdal, lífi hans sem jesúítaprests á erlendri grund, bókunum sem hann skrifaði um bernsku sína
á Íslandi og allt til þess að hann lést árið 1944 þá 86 ára að aldri.
Þjóðdeild Landsbókasafns Íslands
- Háskólabókasafns geymir viðamikið safn helgað Nonna og ritstörfum hans, Nonnasafn og voru munir
úr því safni hluti sýningarinnar.
Sýningin stóð til 6. október 2007.