Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Sýning um Nonna opnar á Amtsbókasafninu

Sýningin Pater Jón Sveinsson - en kallaðu mig Nonna sem sett var upp í Þjóðarbókhlöðunni í september opnaði laugardaginn 10. nóvember í anddyri Amtsbókasafnsins á Akureyri.

Það voru konur úr Zontaklúbbi Akureyrar sem unnu sýninguna en Brynhildur Pétursdóttir safnvörður í Nonnahúsi stjórnaði verkinu og vann stærstan hluta þess. Það tók langan tíma að tína til textabrot og myndefni og raða saman þannig að úr yrði heildstæð mynd af lífi og störfum jesúítaprestsins og rithöfundarins Jóns Sveinssonar, Nonna. Margir lögðu til efni og aðstoðuðu við gerð sýningarinnar en aðrir veittu styrki fyrir þeim kostnaði sem til féll og við opnunina þakkaði Brynhildur þeim öllum fyrir sitt framlag.

 

 

 

 

 

 

Það var svo bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, sem opnaði sýninguna en föstudaginn 16. nóvember voru 150 ár liðin frá fæðingu Nonna. Sýningin var opin til áramóta.


Félagar í Zontaklúbbi Akureyrar fjölmenntu á opnunina ásamt öðrum áhugamönnum um Nonna.

 

 

 

 








 


Gestir við opnunin voru margir og fremst fyrir miðju á myndinni er Ragnheiður Gestsdóttir og hægra megin við hana er Anna G. Thorarensen formaður ZA 2007-2008.
Í myndasafni vefsins eru fleiri myndir frá opnuninni.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning