Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Vinnustaðafundur í janúar

Einn fundur á vetri er haldinn á vinnustað einhvers félagans og þann 20. janúar var boðað til fundar í Rannsóknahúsinu í Borgum þar sem Háskólinn á Akureyri og margar aðrar stofnanir eru til húsa. Fundurinn var haldinn á bókasafni Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar Íslands þar sem ég, Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir starfa sem sveppafræðingur. Þaðan lá leiðin niður um eina hæð þar sem Fjóla Björk Jónsdóttir aðjúnkt við Viðskipta- og raunvísindasvið HA og Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir forstöðumaður RHA, Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar HA kynntu starf sitt.

Fjóla Björk fræddi okkur um það nám sem boðið er upp á á viðskiptasviði HA, einkum fjarnám sem kennt er mest á kvöldin. Sagði frá niðurstöðum könnunar á því hvar fyrrum nemendur störfuðu nú og því hvernig það væri að kenna og stunda rannsóknir í viðskiptadeildinni.
Því næst gengum við framhjá Jafnréttisstofu en þar starfar Ingibjörg Elíasdóttir. Hún var í burtu þetta kvöld og gat því ekki tekið á móti okkur. Og yfir á RHA þar sem Guðrún Rósa lýsti starfseminni. RHA vinnur ákveðin störf fyrir háskólann og sinnir afar fjölbreyttum rannsóknum og fengum við að líta fjöldann allan af skýrslum sem stofnunin hefur gefið út.
Þá var komið að því að skoða Náttúrufræðistofnun og að sjálfsögðu með áherslu á svepparannsóknir stofnunarinnar og þegar sveppafræðingurinn var búinn að sýna aðstöðu sína og fara nákvæmlega yfir nokkur fróðleg sveppasýni og opna skápa sem í fljótu bragði líkjast fataskápum en geyma þurrkaðar plöntur, hæfilegan stafla í hverri hillu. Þá var loksins komið að veitingum á bókasafninu þar sem svarað var því sem spurt var um og málin rædd þar til félagar héldu svo fróðir heim á leið.

rannsóknastofa í grasafræði



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning