Fjáröflun
Zontaklúbbur Akureyrar á húsið Aðalstræti 54 A í Innbænum á Akureyri. Húsið er
kennt við klúbbinn og kallað Zontahús. Í risinu er lítil íbúð sem leigð er út en á jarðhæð er fundarsalur
þar sem fundir klúbbsins og flestra nefnda hans eru haldnir. Húsið hefur einnig nýst safnvörðum og gestum Nonnahúss.
Húsnefnd klúbbsins sér um að leigja út salinn sem er hlýlegur veislusalur eða fundarsalur í gömlum stíl og rúmar 30-40 manns. Búið er að endurnýja eldhúsið og ný uppþvottavél gerir allan frágang auðveldari. Leigu er stillt í hóf og þeir sem nota salinn reglulega geta samið um afslátt.
Nánari upplýsingar um veislusalinn veita formaður húsnefndar, Sigrún
Héðinsdóttir í síma 845-6716 og Ragnheiður Gestsdóttir í síma 864-5943.
Einu sinni á vetri er haldið skemmtikvöld fyrir félaga og gesti þeirra þar sem kynntar eru ýmsar gerðir bjórs, borið fram
meðlæti og fræðst um bjórmenningu á meginlandi Evrópu. Vorið 2010, þann 6. maí var haldið Dömukvöld þar sem
fjallað var um tísku fyrir hina þroskuðu konu og haft gaman af.
Síðustu árin hafa klúbbarnir á Akureyri haldið fjáröflunardansleik á Hótel KEA þar sem gestum gefst kostur á að koma
prúðbúnir, borða góðan mat, njóta skemmtiatriða og dansa við undirleik hljómsveitar fram eftir nóttu.
Fyrir jólin 2008 seldi klúbburinn jólakort og aftur fyrir jólin 2009 og verða kortin til sölu meðan birgðir endast.
Minningarkort Zontaklúbbs Akureyrar fást í Blómabúðinni Akri í Kaupangi á Akureyri. Ágóða af sölu þeirra er varið
til verkefna sem stuðla að því að styrkja stöðu kvenna.
Happdrætti hefur verið fastur liður á fundum frá árinu 1951.