Klúbburinn valdi sér árið 1950 það heimaverkefni að heiðra minningu sr. Jóns Sveinssonar, rithöfundarins Nonna og þegar liðin voru 100
ár frá fæðingu Nonna þann 16. nóvember 1957 var Nonnahús – minjasafn opnað
á æskuheimili Nonna Aðalstræti 54 í Fjörunni á Akureyri.

Í tilefni af því að árið 2007 voru 150 ár liðin frá fæðingu Nonna og 50 ár frá opnun Nonnahúss
ákvað klúbburinn að færa Akureyrarbæ safnið að gjöf. Bæjarstjórinn veitti því viðtöku þann 27. desember 2007.
Klúbburinn tekur áfram þátt í að styðja starf Nonnahúss og mun ásamt öðrum hollvinum Nonnahúss vinna með Minjasafninu
á Akureyri sem sér um rekstur safnsins fyrir Akureyrarbæ.

Bæjarstjórinn á Akureyri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, tekur við Nonnahúsi frá Önnu G. Thorarensen formanni Zontaklúbbs
Akureyrar.
Klúbburinn hefur gegnum tíðina styrkt ýmis mannúðarmál á Akureyri, gefið einn eða með öðrum tæki og búnað
til Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og kom á tímabili að tómstundastarfi eldri borgara svo nokkur dæmi séu nefnd.
Síðustu ár hefur hann styrkt starf Aflsins -
systursamtaka Stígamóta á Akureyri. Auk þess hefur klúbburinn á hverju ári lagt fram fé til alþjóðlegra verkefna
Zontahreyfingarinnar til að styrkja og efla hag kvenna einkum í þróunarríkjum og á ófriðarsvæðum heimsins.
Framundan er að velja nýtt heimaverkefni og kemur margt til greina.