Zontaklúbburinn Embla í Reykjavík var stofnaður 29. september 1988. Stofnfélagar voru 27 en í dag eru 30 konur í
klúbbnum.
Fundir eru haldnir fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá september fram í maí. Fundarstaðir eru ýmist í heimahúsum klúbbkvenna
eða veitingasölum. Spennandi fræðsluefni er í boði á hverjum fundi, ýmist í boði klúbbkvenna sjálfra eða einhverra
utanaðkomandi aðila. Einn fundur á ári er sameiginlegur með Zontaklúbbi Reykjavíkur, Zontaklúbbnum Sunnu í Hafnarfirði
og Zontaklúbbi Selfoss, í umsjón klúbbanna til skiptis. Árlega er mökum og vinum boðið á sérstakan fund og í lok hvers
starfsárs er oftast farið í ferðalag út fyrir bæinn.
Flýtilyklar
Zontaklúbburinn Embla í Reykjavík
Fréttir
Vorblómasala 2008
Hin árlega stjúpusala Zontaklúbbsins Emblu fór fram í lok maí 2008. Á boðstólum voru stjúpur í öllum regnbogans litum, auk morgunfrúa, daggarbráa og ýmiss konar kantblóma. Ágóði blómasölunnar 2008 var tæplega 300.000- krónur.
20 ára afmæli Zontaklúbbsins Emblu
2. apríl var haldinn hátíðarfundur vegna 20 ára afmælis Zontaklúbbsins Emblu. Fundurinn var haldinn í heimahúsi og sá stjórnin um glæsilegan afmæliskvöldverð. Svo skemmtilega vildi til að fjórar nýjar konur voru teknar inn í klúbbinn á fundinum við hátíðlega athöfn. Það voru þær Ragnheiður Gunnarsdóttir, Sigríður G. Jóhannsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og Svanfríður S. Franklínsdóttir. Af 27 stofnfélögum eru 6 konur enn í klúbbnum.
Landssöfnun Zontahreyfingarinnar 8. mars 2008
Zontaklúbburinn Embla tók virkan þátt í landssöfnun Zontaklúbbanna á Íslandi sem fram fór á alþjóðlega baráttudegi kvenna 8. mars 2008. Yfirskrift söfnunarinnar var "Zonta gegn kynferðisofbeldi" og rann söfnunarféð til Stígamóta vegna verkefnisins "Stígamót á staðinn" og systursamtaka þeirra Aflsins á Akureyri og Sólstafa á Ísafirði, en auk þess í Zisvaw sjóð Zonta International. Salan fór fram í stórmörkuðum og víðar og seldust alls um 10 þúsund barmnælur.
Í hita leiksins gafst stund til að heimsækja frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands og heiðursfélaga Zontahreyfingarinnar á Íslandi og var henni færð næla í tilefni dagsins.


