Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Landssöfnun Zontahreyfingarinnar 8. mars 2008

Frú Vigdísi færð Zontanæla
Frú Vigdísi færð Zontanæla

Zontaklúbburinn Embla tók virkan þátt í landssöfnun Zontaklúbbanna á Íslandi sem fram fór á alþjóðlega baráttudegi kvenna 8. mars 2008. Yfirskrift söfnunarinnar var "Zonta gegn kynferðisofbeldi" og rann söfnunarféð til Stígamóta vegna verkefnisins "Stígamót á staðinn" og systursamtaka þeirra Aflsins á Akureyri og Sólstafa á Ísafirði, en auk þess í Zisvaw sjóð Zonta International. Salan fór fram í stórmörkuðum og víðar og seldust alls um 10 þúsund barmnælur.

Í hita leiksins gafst stund til að heimsækja frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands og heiðursfélaga Zontahreyfingarinnar á Íslandi og var henni færð næla í tilefni dagsins.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning