Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Verkefni

Zontaklúbburinn Embla leggur árlega fram fé til alþjóðasamtaka Zontahreyfingarinnar þar sem hluti félagsgjalda renna í hina alþjóðlegu hjálparsjóði samtakanna. Frá stofnun hafa Zontasamtökin stutt hjálparstarf til handa konum og börnum á alþjóðlegum vettvangi í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar og hjálparsamtök í viðkomandi landi. Stuðningur við alþjóðleg verkefni Zontasamtakanna er ómetanlegt framlag

  • í löndum stríðsátaka þar sem konur og börn eru saklaus fórnarlömb
  • þar sem fátækt eða trúarofstæki hamlar menntun kvenna og stúlkubarna
  • þar sem stjórnmál svipta konur almennum mannréttindum

Zontaklúbburinn Embla veitir einnig fé til margvíslegra, innlendra góðgerðarmála er varða konur og/eða börnsem eiga, eða hafa átt í erfiðleikum, tímabundið eða til lengri tíma.  Dæmi um innlenda aðila sem klúbburinn hefur styrkt á undanförnum árum eru Stígamót, Kvennaathvarfið, Konukot, Alnæmissamtökin, Áfangaheimilið Dyngjan, barnaheimilin að Geldingalæk og Móaflöt í Garðabæ og Ævintýraklúbburinn.

Zontaklúbburinn Embla hefur einnig styrkt verkefni á erlendum vettvangi eins og Candlelight Foundation í Campala í Uganda, sem styrkir alnæmissmitaðar götustúlkur til sjálfshjálpar. Einnig hefur klúbburinn tekið þátt í samstarfsverkefnumZontaklúbbanna áÍslandi, meðfjárframlagi í flóðasjóð eftir flóðbylgjuna miklu í Indónesíu og afhendingu á ljósmæðratöskum í Afganistan.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning