Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Verkefni


Verkefni klúbbsins hafa verið margvísleg. Fyrsta starfsár sitt styrkti klúbburinn kennara við Grunnskólann á Ísafirði, júgóslavneska flóttakonu, til þess að fara á ráðstefnu um móðurmálskennslu í Svíþjóð.
Annað árið veitti hann tveimur stúlkum í 8. og 9. bekk Grunnskólans á Ísafirði ferðastyrk til þess að fara á nemendamót í Svíþjóð, en það var liður í Sókratesáætlun Evrópusambandsins að kynna siði og menningu sambandslandanna.
Á þriðja starfsári klúbbsins stóðu Zontakonur fyrir tölvukennslu fyrir eldri borgara og ári seinni var veittur styrkur til tækjakaupa á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Ísafjarðarbæjar. Einnig hefur  klúbburinn veitt stúlku ferðastyrk til listnáms.

Þá hefur klúbburinn styrkt eitt stúlkubarn í samvinnu við SOS barnahjálpina. Á hverju ári hefur klúbburinn sent ákveðna fjárupphæð til alþjóðaverkefna Zontahreyfingarinnar, í Z.I. sjóðinn og til ZISWAV, auk þess sem greitt hefur verið í Amalie Earhart-sjóðinn.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning