Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna

Zontaklúbburinn Þórunn hyrna er annar tveggja Zontaklúbba á Akureyri, stofnaður 23. apríl 1984. Klúbburinn er í Alþjóðasamtökum Zonta og fylgir markmiðum samtakanna að styrkja stöðu kvenna um heim allan. Félagar eru 24.

Fundirnir
Fundir eru haldnir víða um bæinn og nágrenni hans, annan mánudag í hverjum mánuði frá september til maí. Oft eru fundirnir haldnir á veitingahúsum eða á vinnustöðum félaganna en einna skemmtilegastir eru fundirnir þegar þeir eru haldnir í heimahúsum.

Á fundum er farið yfir fyrirliggjandi Zontamálefni og þau afgreidd en að því loknu er stefnt að því að dagskrár- og skemmtinefnd  bjóði upp á atriði á hverjum fundi konum til skemmtunar. Markmið Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu er að láta gott af sér leiða og styðja styrktarverkefni Zonta en jafnframt að hafa góðan anda í klúbbnum og skemmtilegt á fundunum.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning