Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fjáröflun og verkefni

Fjáröflun Þórunnar hyrnu
Félagar í Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu hafa um árabil bakað laufabrauð og selt fyrir jólin. Um miðjan nóvember hafa félagskonur, ættingjar og vinir komið saman um helgi til að skera og steikja og má með sanni segja að þá hefst jólaundirbúningurinn hjá mörgum þeirra.

Konukvöld Þórunnar hyrnu er líka að festa sig í sessi í bæjarlífinu á Akureyri en það er haldið annað hvert ár. Þá bjóða félagskonur öðrum konum gegn greiðslu að þiggja kvöldverð sem þær hafa sjálfar útbúið og á eftir eru margvísleg skemmtiatriði. Konukvöldið hefur verið haldið í Golfskálanum undir vor og nýtur mikilla vinsælda.

Zontaballið á Akureyri sem Þórunn hyrna skipuleggur ásamt Zontaklúbbi Akureyrar hefur verið haldið á haustin að undanförnu. Um er að ræða „galadansleik“ á Hótel KEA með hljómsveit og Helenu Eyjólfs okkar ástsælu söngkonu sem er einmitt félagi í Þórunni hyrnu. Þar sem lítið er um böll eins og þau voru og hétu á KEA í gamla daga hefur Zontaballið mælst vel fyrir og er óðum að festa sig í sessi í bæjarlífinu.

Fjáröflun klúbbsins hefur gengið mjög vel og eru félagskonur þakklátar fyir það en þær legga líka mikið af mörkum sjálfar. Á hverjum fundi er happdrætti og rennur afraksturinn af því í styrktarsjóðina auk þess sem oft er boðið upp á veitingar í fundunum sem félagskonur skiptast á að gefa allar greiða fyrir á fundunum. 

Hvernig er fénu varið?
Klúbburinn hefur unnið að umhverfismálum, staðið að tækjakaupum fyrir heilbrigðisstofnanir á Akureyri og í Eyjafirði og styrkt kvennaathvarfið í Reykjavík. Klúbburinn hefur einnig um árabil styrkt stúlku frá Filipseyjum í gegn um ABC hjálfparstarfið en eftir að hún náði fullorðinsaldri var því hætt en við tók lítil stúlka á Indlandi.

Eftir að Háskólinn á Akureyri tók til starfa árið 1987 ákvað klúbburinn að efla hann með því að gefa háskólabókasafninu peningaupphæð á ári hverju, einkum til kaupa á gagnasöfnum fyrir kennslu í hjúkrunarfræði. Klúbburinn veitir einnig verðlaun þeim kandídat, sem hæsta einkunn hefur hlotið á lokaprófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri.

Þórunn hyrna hefur einnig látið fé af hendi rakna til alþjóðlegra verkefna Zonta eins og lög og reglur Zonta International gera ráð fyrir og reynt er að leggja jafnar áherslur á verkefni innanlands og í útlöndum. 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning