Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Heimsþing Zonta International verður í Torino á Ítalíu í sumar

Heimsþing Zonta International verður að þessu sinni haldið í Torinó á Ítalíu dagana 7. -12. júlí. Zontakonur geta fundið allar nánari upplýsingar hér.

Þess má vænta að íslenskar Zontakonur fjölmenni að vanda enda er þátttaka í heimsþinig eitthvað sem sagt er að hver Zontakona þurfi að upplifa a.m.k. einu sinni.


15 ára afmæli Zontaklúbbsins Fjörgynjar

Á þessu ári fagnar Zontaklúbburinn Fjörgyn á Ísafirði 15 ára starfsafmæli sinu.  Klúbburinn var stofnaður 2 desember 1996. Afmælisfagnaður verður haldin í Safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju á afmælisdaginn 2. desember og byrjar dagskráin kl. 19.30.

Zonta - 70 ár á Íslandi

Zontaklúbbarnir á Íslandi halda upp á 70 ára afmæli Zonta hreyfingarinnar hér á landi 8. nóvember. Zontasamband Íslands er aðili að alþjóðlegri hreyfingu Zonta International sem er þjónustusamtök kvenna sem vinna saman að því að bæta stöðu kvenna um allan heim. Marian De Forest var aðal hvatamaður að Zontahreyfingunni, sem stofnuð var 8. nóvember 1919 í Buffalo, New York fylki í Bandaríkjunum.

Lesa meira

Nýr Zontaklúbbur í Borgarfirði

Þann 7. júní sl. var stofnaður nýr Zontaklúbbur í Borgarfirði. Stofnfélagar voru samtals 23 konur. Zontasamband Íslands bíður félaga í Zontaklúbbi Borgarfjarðar velkomnar í hópinn.

 

 

 

Í stjórn voru kosnar:

Björg Gunnarsdóttir landfræðingur
Guðríður Sigurjónsdóttir leikskólakennari
Ingibjörg Einarsdóttir leikskólakennari
Margrét Vagnsdóttir viðskiptalögfræðingur
Signý Óskarsdóttir gæðastjóri, formaður 
Theodóra Þorsteinsdóttir söngkona og skólastjóri
Ulla R. Pedersen landslagsarkitekt


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning