Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

25 ára afmælisveisla Zontaklúbbsins Þórunnar hyrnu

Göngugarpar við Hraunsvatn
Göngugarpar við Hraunsvatn
Zontaklúbburinn Þórunn hyrna átti 25 ára afmæli á sumardaginn fyrsta þann 23. apríl sl. Ekki var tækifæri til að halda upp á afmælið rétta daginn svo það var gert 28. maí. Þá lögðu Zontakonur með mökum land undir fót og héldu inn í Öxnadal þar sem sumir gengu upp að Hraunsvatni en aðrir settust inn í hlýlega setustofu veitingastaðarins Halastjörnunnar og létu fara vel um sig við lestur tímarita eins og Heima er best frá 1960 og öðru álíka fágæti.

Gangan að Hraunsvatni, sem var ísilagt að verulegum hluta, tók tvær klukkustundir en að þeim liðnum nutu Zontakonurnar og gestir þeirra veitinga Halastjörnunnar og skemmtu sér konunglega fram eftir kvöldi.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning