Á 100 ára afmæli Alþjóðlegs baráttudag kvenna þann 8.mars
Almennt - þriðjudagur 06.apríl 2010 - Lestrar 53

Formaðurinn Jósefína og styrkþeginn Málfríður
Á 100 ára afmæli Alþjóðlegs baráttudags kvenna þann 8.mars s.l. afhenti Zontaklúbburinn Fjörgyn á Ísafirði, Ísfirðingnum Önnu Málfríði Jónsdóttur brunaöryggisverkfræðingi, styrk sem viðurkenningu fyrir framsækið náms- og starfsval. Zontahreyfingin er alþjóðlegur atvinnugreinaklúbbur kvenna.
Einn af stærstu styrkjum sem Zontahreyfingin veitir, er úr Amelia Earhart sjóðnum.
Honum er ætlað að styrkja konur sem fara í raun- og geimvísindi.
Svo vill til að japönsk kona Naoko Yamazaky geimfari, sem hlaut styrk úr sjóðnum 1994-1995, er að fara í geimferð með geimferjunni Atlantis, þann 18.mars n.k. Hún er annar kvengeimfarinn sem hefur hlotið styrk úr sjóðnum.
Styrkinn afhenti formaður Zontaklúbbsins Fjörgynjar á Ísafirði, Jósefína Gísladóttir.