Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Ályktanir Landsfundar Zontasambands Íslands

Á Landsfundi Zontasambands Íslands sem haldinn var á Akureyri 17.-19. apríl sl. var nýjum lögum sem gera refsivert að kaupa vændi fagnað. Lögin gefa mikilvæg skilaboð um að kaup á líkama fólks séu óásættanleg og einnig að menn nýti sér neyð annarra í kynferðislegum tilgangi. Landsfundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun sem komið var á framfæri við fjölmiðla landsins.


Ályktun um mansal
Landsfundur Zontasambands Íslands haldinn á Akureyri 18. apríl 2009 fagnar því að Alþingi hafi í gær samþykkt frumvarp um breytingar á hegningarlögum sem gerir það refsivert að kaupa vændi. Með lagabreytingunni eru send þau mikilvægu skilaboð að ekki sé ásættanlegt að kaupa aðgang að líkama fókls og nýta sér neyð annarra í kynferðislegum tilgangi. Landsfundurinn telur mikilvægt skref hafa verið stigið í jafnréttisbaráttu á Íslandi.

Ályktun um Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Zontasambandið ályktaði um fleira, því Zontakonur vilja að nýtt Alþingi, sem kosið var til 25. apríl sl., lögleiði Kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna strax á fyrstu starfsvikum sínum. Kvennasáttmálinn er 30 ára á þessu ári. Íslendingar hafa ekki staðið við skuldbindingar sáttmálans í alþjóðasamstarfi og hafa fyrir það uppskorið athugasemdir og aðfinnslur frá Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna. Zontakonur álykta að við svo búið megi ekki standa og með því að innleiða Kvennasáttmálann í íslenska löggjöf verði stigið táknrænt og raunverulegt skref í átt til þess að tryggja réttindi og stöðu kvenna.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning