Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Ljósaganga niður á Ráðhústorg á Akureyri á degi Sameinuðu þjóðanna

Zontaklúbbarnir á Akureyri tóku þátt í dagskrá og ljósagöngu niður á Ráðhústorg í tilefni af lokadegi 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi og mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna þann 10. desember.

Safnast var saman í Kvosinni í húsnæði Menntaskólans á Akureyri þar sem Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu flutti erindi um kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem nú er 30 ára. Sigrún Stefánsdóttir formaður félagsmálaráðs Akureyrarbæjar kynnti áætlun bæjarins gegn heimilis- og kynbundnu ofbeldi, en Akureyri er í fararbroddi í þessum málum utan Reykjavíkur. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir höfundur bókarinnar Á mannamáli flutti eftirminnilegt erindi. Kveikjan að bókinni var hversu sláandi vægar refsingar hér hafa tíðkast við kynferðisbrotum.

Nemendur í öðrum bekk MA settu mikinn svip á samkomuna og hátíðahöldin. Þeir höfðu útbúið spjöld og æft heróp gegn kynferðisofbeldi undir forystu kennara sins Þorláks Axels Jónssonar. Aðrir þáttakendur í hátíðahaldinu og göngunni voru Jafnréttisstofa, Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri, Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Akureyri, Soroptimistafélagið á Akureyri, Norðurlandsdeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og UNIFEM á Íslandi.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning