Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Dianne Curtis fékk viðurkenninguna Minerva Award

Þann 15. nóvember 2010 fékk Dianne Curtis alþjóðaforseti Zonta viðurkenninguna Minerva Award í Róm. Hún er fyrsti þegn Ameríku til þess að hljóta þessi mikils metnu verðlaun. Minerva Award sjóðurinn var stofnaður 1983 af Anna Maria Mammoliti sem var forseti kvennaklúbbs á Ítalíu.

Viðurkenning er veitt konum sem berjast gjarnan við ofurefli fyrir aukinni þekkingu í samfélagi sínu og kynna ný gildi og nýjar áherslur. Hún er einnig veitt körlum sem sem hafa lagt samfélaginu lið á jákvæðan hátt.

Dianne lýsti yfir ánægju sinni með verðlaunin og sagði að Zonta Interntional myndi áfram berjast fyrir bættri stöðu kvenna og berjast gegn ofbeldi á konum um allan heim.

Lesið meira hér.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning