Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Formannafundur Zontasambandsins 2010

Formannafundur var haldinn á Loftleiðahótelinu laugardaginn 18. september. Fulltrúar frá öllum Zontaklúbbum að Íslandi mættu á fundinn.

Dagskrá formannafundar var hefðbundin en þess utan var rætt um kvennafrídaginn 25. október 2010, starfsemi Skottanna sem Zonta á aðild að og landssöfnunina sem fram fer helgina 14. og 16. október. Einnig voru aðrir dagskrárliðir tengdir kvennafrídeginum kynntir. 

Gestur fundarins var rithöfundurinn og leikkonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og kynnti hún bók sína Á mannamáli. Bókin fjallar um ofbeldi á Íslandi, umræðuna, dómskerfið og staðreyndirnar á mannamáli  eins og stendur aftan á kápu bókarinnar.


Hrönn, Guðrún, Ragnheiður, Þóra, Barbara og Jósefína.

Inga, Vilborg, Kristín, Sigrún, Hildur Nanna og Ragnhildur



Guðríður, Ólöf Kolbrún, Olga og Jósefína

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning