Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Frásögn Ragnheiðar Hansdóttur umdæmisstjóra af ferð hennar til Kaupmannahafnar á landsfund dönsku Zontaklúbbanna og 75 ára afmæli “Kaupmannahöfn I” elsta Zontaklúbbsins í Danmörku.

Ég fór til Kaupmannahafnar að morgni föstudagsins 25. september.  Um kvöldið var kvöldverður í heimahúsi “Home Hospitality” og var ég ásamt 5 öðrum konum hjá Kirsten Theisen, þar sem við áttum mjög notalegt kvöld eins og venja er með þessi kvöld í heimahúsi. Landsfundurinn var haldinn á Gentofte Hotel, laugardaginn 26. október og stóð frá klukkan 10.00 til klukkan 17.00.

Gestir fundarins voru ameríski ambassadorinn, sem er kona að nafni Laurie S. Fulton og dönsk kona, Britta Thomsen, sem er fulltrúi á Evrópuþinginu. Þær héldu báðar mjög athyglisverða fyrirlestra.

Laura sagði frá amerískum manni, sem hefur unnið hjálparstarf í Afghanistan og Pakistan með því að aðstoða við uppbyggingu grunnskóla þar. Það vakti athygli hans að foreldrar eða aðallega feður vildu gjarnan mennta dætur sínar. Hann spurði um ástæðu og fékk það svar, að synir sem menntuðu sig, færu burt í leit að meiri frama, en dæturnar væru kyrrar í heimabyggð og hjálpuðu til við að byggja upp samfélagið.

Britta talaði meðal annars um fæðingarorlof og sagði að íslenska módelið væri til fyrirmyndar, þar sem foreldrar fengju 9 mánuði, sem þau skiptu með sér.

Á fundinum var samþykkt að veita “Kvindeprisen” til konu, sem hefur skarað fram úr á einhverju sviði, sem snertir konur sérstaklega. Þar má nefna brjóstakrabbamein, ofbeldi gegn konum og launamismun kvenna og karla. Verðlaunin eru peningaupphæð og skartgripur, sem skal vera tákn um þennan heiður og verðlaunin skal veita annað hvert ár eða þau ár, sem ekki er umdæmisþing.

Verðlaunin hlaut að þessu sinni Kirsten Tørsleff, sjúkraþjálfari, sem hefur stundað rannsóknir og stjórnað meðferð kvenna eftir skurðaðgerð vegna brjóstakrabbameins með athyglisverðum árangri.

Eva Nielsen hafði fengið það verkefni að skrifa sögu Zonta í Danmörku í tilefni af 75 ára Zontastarfi þar. Árangur af hennar vinnu var útgáfa vandaðs rits, sem ber nafnið “Træk af de danske Zonta klubbers historie 1935 -2010” og var því dreift á fundinum..

Ég hélt ræðu á fundinum og vakti meðal annars athygli á umdæmisþinginu, sem verður á Akureyri 8. -11. september 2011. Ég fékk mjög góð viðbrögð og konur sýndu þinginu mikinn áhuga.

Um kvöldið var hátíðakvöldverður á Gentofte Hotel. Heiðursgestur var greifynja Alexandra, en hún er heiðursfélagi í Kaupmannahöfn I. Það vakti athygli mína hversu góða dönsku hún talar. Hún hefur komið til Íslands og lét í ljósi áhuga á að koma aftur með syni sína og leyfa þeim meðal annars að synda í Bláa lóninu. Þessi hátíðakvöldverður var á allan hátt mjög ánægjulegur og góður endir á góðum degi.

Ég átti tal við margar Zontakonur þessa daga og það var ánægjulegt að kynnast þeim og skiptast á skoðunum við þær. Þessi ferð var því  gefandi og nærandi og ég hélt heim á sunnudegi reynslunni ríkari.

Með góðum Zontakveðjum

Ragnheiður Hansdóttir
Umdæmisstjóri



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning