Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Heimsþingið í San Antonio sumarið 2010

Íslenskar Zontur í Texas
Íslenskar Zontur í Texas
Hér á eftir fer frásögn Ragnheiðar Hansdóttur umdæmisstjóra 13. umdæmis.

 

Níu íslenskar Zontasystur sóttu heimsþing Zonta í San Antonio í Texas 25. til 30. júní 2010.

Þær voru:

Ólöf Kolbrún Harðardóttir frá Zkl. Reykjavíkur
Ingibjörg Elíasdóttir frá Zkl. Akureyrar, fráfarandi svæðisstjóri
Fjóla Björk Jónsdóttir Zkl. Akureyrar, verðandi umdæmisgjaldkeri
Hulda Hrönn M Helgadóttir Zkl. Akureyrar
Ragnheiður Hansdóttir Zkl. Akureyrar, verðandi umdæmisstjóri
Guðrún Hansdóttir Zkl. Emblu, fánaberi fyrir Ísland
Ragna Karlsdóttir Zkl. Emblu, formaður OMC nefndar Zonta International
Sigríður Sía Jónsdóttir Zkl. Þórunni hyrnu
Bryndís Bjarnarson Zkl. Sunnu, verðandi svæðisstjóri

Við bjuggum allar á ráðstefnuhótelinu Marriott River Center, sem var lúxushótel og dýrt að sama skapi, en vel fór um okkur. Á fjórðu hæð var heilsuræktastöð og sundlaug, sem nýttist vel. Hitastigið var um 35° á Celcius en loftkæling var svo mikil að kvartað var undan kulda í ráðstefnusölum. Hótelið stendur á árbakka San Antonio árinnar og mannlíf er fjölbreytt og skemmtilegt og margt að sjá þegar gengið er í góða veðrinu meðfram ánni.

Við íslensku Zonturnar áttum góðar stundir saman eins og alltaf og kynntumst öðrum Zontasystrum víðs vegar að. Frá Litháen var aðeins ein kona, Ruta Jasioniene, og var hún gjarnan í för með okkur þannig að við kynntumst henni talsvert.

Ráðstefnuna sóttu um 1600 Zontasystur alls staðar að úr heiminum. Oft hafa um 2000 félagar sótt heimsþingin þannig að þetta var fámennara þing en oftast er, enda kreppa í heiminum og þetta þing var ákaflega dýrt.

Föstudaginn 25. júní var haldinn fundur um fjármál Zontahreyfingarinnar. Hann var gagnlegur og virtist manni að öll spil væru uppi á borðinu og að allra leiða væri leitað til að fara vel með fjármuni.

Nú á Zontahreyfingin ekkert húsnæði en leigir afar gott húsnæði í háhýsi í Oak Brook í Chicago. Húsið í Randolph Street hefur verið selt fyrir viðunandi verð. Húsnæði í Walker Street sem stjórn Zonta International Foundation, ZIF keypti var síðan selt 28. júlí 2010. Það var ekki ljóst á þinginu en Dianne Curtis sendi út bréf þegar salan var frágengin.

Mikill ágreiningur varð út af þessum kaupum Foundation stjórnarinnar eins og ykkur er væntanlega kunnugt. Stjórnin var sett af og nú er aðeins ein stjórn sem stýrir Zonta International, ZI og einnig öllum sjóðunum. Það fyrirkomulag hlýtur að teljast skynsamlegt, minni yfirbygging, færri stjórnendur. Það er talið hagstætt að leigja húsnæði og þurfa ekki að hugsa um viðhald.Peningar sem komu fyrir húsnæði í Walker Street voru settir í Rósasjóð.

Laugardaginn 26. júní var opnunarhátíð, mjög vegleg að vanda. Fánaberi fyrir Ísland var Guðrún Hansdóttir í Emblu. Fánaberi fyrir Danmörku var Kari Vieth. Fánaberi fyrir Noreg var Torbjorg ??? frá Þrándheimi og fyrir Litháen, Ruta Jasioniene frá Alytus.

Næstu daga fóru í hönd fundir þar sem kosið var um ýmsar lagabreytingar, hækkanir á félagsgjöldum og síðast en ekki síst nýja embættismenn.

Það var samþykkt með talsverðum meirihluta að félagsgjöld 2011 til 2012 yrðu 80 US $. Rök voru færð fyrir því að það væri nauðsynlegt að öðrum kosti þyrfti að taka fé úr Rósasjóði.

Það er gleðilegt fyrir Umdæmi 13 að Maria Jose Landeira Östergaard var kosin Vice President. Hún mun því líklega bjóða sig fram til President Elect á þingi í Torino 2012 og sennilega taka við embætti International President árið 2014. Við erum stoltar af henni og óskum henni til hamingju og óskum henni velfarnaðar.

Lynn Mc Kenzie frá Nýja Sjálandi var kosin President Elect. Hún mun því taka við sem International President í Torino 2012. Hún er liaison eða tengiliður 13. umdæmis við alþjóðastjórnina og er því yfirmaður minn og ég vænti mjög góðs af samstarfi við hana.

Ragna Karlsdóttir Zkl. Emblu tók við sem formaður OMC Committee (Organization, Membership and Classification Committee) . Hún hefur verið umdæmisstjóri í umdæmi 13 og einnig International Director. Við óskum henni til hamingju og erum stoltar af henni.

Ingibjörg Elíasdóttir ZA situr í LLA Committee (Legislative Awareness and Advocacy Committee) og við óskum henni til hamingju með það og erum stoltar af henni.

Bryndís Bjarnarson Zkl. Sunnu tók við embætti svæðistjóra á Íslandi af Ingibjörgu Elíasdóttur. Ingibjörg nældi svæðisstjóranæluna í Bryndísi í boði hjá Kari fyrir lokahófið 30. júni. Við þökkum Ingibjörgu hennar góðu störf og óskum Bryndísi alls hins besta í svæðisstjóraembættinu.

Fjóla Björk Jónsdóttir tekur nú við sem gjaldkeri 13. umdæmis af Sigríði Jónsdóttur. Við þökkum Sigríði vel unnin störf og óskum Fjólu til hamingju og óskum henni velfarnaðar.

Ragnheiður Hansdóttir þ.e. undirrituð tók við embætti umdæmisstjóra af Kari Vieth í lokahófinu. Ég þakka Kari og allri stjórninni fyir frábært samstarf  og ég mun leggja mig alla fram í þessu starfi og bið um hlýjar hugsanir og góða strauma frá ykkur öllum til mín.

Dianne Curtis frá Kaliforníu er nú International President og tók við því af Beryl Sten frá Svíþjóð. Það er allmennt álitið að Beryl hafi staðið sig mjög vel í þessu starfi ekki síst vegna þeirra átaka sem upp komu milli stjórnar ZI og ZIF. Vonandi er nú allur ágreiningur úr sögunni.

Dianne er ákaflega aðlaðandi og dugleg kona. Þið getið lesið um hana í Zontian. Hún hefur ákveðið að vinna áfram að þeim verkefnum sem unnið var að á síðasta tvíæringi og það var samþykkt og mælist vel fyrir. Þið getið lesið um þessi verkefni í Zontian og einnig í bréfi frá Aud Aakre, Foundation Ambassador okkar í umdæmi 13. Bréf hennar var sent út til svæðisstjóra og þær eiga síðan að dreifa því til allra félaga.

Zontaþing eru gefandi og nærandi. Það er ómetanlegt að kynnast öllum þessum konum af ólíku þjóðerni og frá ólíkum menningarheimum. Samt eigum við allar svo margt sameiginlegt. Við erum allar konur og okkur er ekki sama hvernig heimurinn er. Okkur tekur sárt að horfa upp á slæm kjör svo margra kynsystra okkar. Við viljum leggja hönd á plóg til að bæta stöðu kvenna. Zontahreyfingin er kjörinn vettvangur til þess.

Með Zontakveðju

Ragnheiður Hansdóttir

Umdæmisstjóri umdæmi 13.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning