Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Kynjagleraugun mátuð

Dagana 15.-16. október fór fram landssöfnun gegn kynferðisofbeldi á Íslandi. Safnað var fyrir stóraukinni og bættri þjónustu Stígamóta. Gert er ráð fyrir að þjónustan utan höfuðborgarsvæðisins verði endurvakin, en fyrir efnahagshrunið voru útibú Stígamóta á 7 stöðum á landinu. Jafnframt verður Stígamótum breytt í sólarhringsmiðstöð og í tengslum við miðstöðina opnað athvarf fyrir konur sem vilja brjótast út úr mansali og vændi. Þörfin fyrir þá þjónustu hefur verið mjög brýn og staðfest af Sérfræðinga og samhæfingarteymi gegn mansali. Gert er ráð fyrir að Skotturnar muni skipta á milli sín kvöld-, nætur- og helgarvöktum í sjálfboðavinnu.

 

Á myndinni eru Þórdís Elva Þorvaldsdóttir höfundur bókarinnar Á mannamáli og Stefán Eiríksson lögreglustjóri að máta kynjagleraugun.

Svo þessi áform geti ræst þarf öll þjóðin að leggjast á eitt. Seldar voru gleraugnanælur með bleiku og bláu gleri og eiga þau að minna á að bæði kynin þurfa að taka ábyrgð á kynferðisofbeldi. Nælan kostaði 1.000 kr. og verður seld fram að Kvennafrídegi 25. október 2010. Hrím hönnunarhús á Akureyri hannaði kynjagleraugun sem seld voru en einnig var seld bókin Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur og stór hluti af ágóða bókarinnar rennur til málefnisins. Soroptimistar og Zontakonur annast söluna en  sölukonurnar koma úr röðum annarra aðildarsamtaka Skottanna einnig og allar gáfu þær sína vinnu við söfnunina.

Myndin er birt með góðfúslegu leyfi Sigtryggs Ara Jóhannssonar hjá DV.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning