Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Fjölmenni á landsfundi Zontasambands Íslands á Akureyri

Landsfundur Zontasambands Íslands var haldinn á Akureyri 17.-18. apríl sl. Mikill fjöldi Zontakvenna, víðs vegar að af landinu, sat fundinn eða um 65 konur. Landsfundurinn hófst með móttöku í Zontahúsinu v. Aðalstræti í boði Zontaklúbbs Akureyrar. 

Fundurinn var haldinn á Hótel KEA laugardaginn 18. apríl og lauk með glæsilegri veislu þar um kvöldið.

Daginn eftir gengu margar Zontakvennanna kvennasögugöngu um innbæ Akureyrar og þáðu myndarlegar veitingar í Zontahúsinu að göngu lokinni..



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning