Til hamingju með daginn Vigdís

Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands fagnar áttræðisafmæli sínu í dag. Vigdís var tilnefnd sem heiðursfélagi Zonta International árið 1999 og hún tók við heiðursviðurkenningunni á umdæmisþingi 13. umdæmis á Hótel KEA, Akureyri föstudaginn 7. september 2001. Vigdís er og hefur verið konum frábær fyrirmynd til góðra verka, jafnt innanlands sem utan. Zontasamband Ísland óskar Vigdísi innilega til hamingju með daginn.
Jafnframt vill Zontasambandið vekja athygli á viðamikilli afmælisdagskrá sem haldir verður í Háskólabíói í dag, afmælisdaginn 15. apríl og hefst hún kl. 16:30. Zontakonur eru hvattar til að taka þátt í dagskránni sem sjá á hér fyrir neðan:
Þú siglir alltaf til sama lands
Hátíðardagskrá í Háskólabíói 15. apríl kl. 16:30–18:00
Dagskráin er öllum opin. Húsið verður opnað kl. 15:30 og eru gestir hvattir til að mæta stundvíslega þar sem sent verður beint út
í sjónvarpi og útvarpi.
Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands, setur dagskrána kl. 16:30 og í kjölfarið munu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri ávarpa afmælisbarnið. Háskóli Íslands, stjórnvöld og Reykjavíkurborg standa að afmælishátíðinni.
Þá tekur við dagskrá í myndum, tali og tónum undir listrænni stjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur. Dagskráin er afmælisgjöf til Vigdísar frá listamönnum og þeim samtökum sem Vigdís hefur unnið hvað mest með. Dagskránni lýkur laust fyrir kl. 18 með ávarpi afmælisbarnsins.
Heiðrum Vigdísi á þessum merkisdegi hennar með því að fjölmenna á afmælishátíðina.
Nánari upplýsingar á vef Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur http://www.vigdis.hi.is/