Þing 13. umdæmis Zonta í Hróarskeldu

Dagana 24.-27. september 2009 var haldið þing 13. umdæmis Zonta í Hróarskeldu í Danmörku. Þingið sátu 150 konur, þar af 18 frá Íslandi og voru aðstandendur þingsins mjög ánægðar með hvað margar konur sáu sér fært að mæta þrátt fyrir kreppuástand.
Meginþema þingsins var „kvinder kan“ eða „konur geta“ og var fjallað um það á hvern hátt Zonta hefur látið gott af sér leiða í samfélaginu og hvernig hægt er að festa Zonta og það sem samtökin standa fyrir enn betur í sessi. Einnig voru þrjár konur aðalfyrirlesarar en allar eiga þær það sameiginlegt að hafa afrekað eitthvað það sem er einstakt, hver á sinn hátt. Þetta voru hóteeigandinn Sandra Plesner Weinert, hjúkrunarfræðingurinn og ævintýrakonan Susanne Malmström og stjarneðlisfræðingurinn Anja C. Andersen.