Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Vorferð Þórunnar hyrnu

Zontakonur í Dimmuborgum
Zontakonur í Dimmuborgum
Konur í Zontaklúbbinum Þórunni hyrnu lögðu land undir fót og fóru í vorferð í Mývatnssveitina þann 15. maí sl.

Það var dagskrár- og skemmtinefnd sem skipulagði ferðina og tókst hún afbragðsvel þrátt fyrir slyddu og dumbungsveður. Gert var ráð fyrir fræðslu og skemmtun á hverjum viðkomustað og sá fyrsti var Þorgeirskirkja við Ljósavatn. Þaðan var haldið í Dimmuborgir og rölt einn hring. Athygli vakti rjúpnapar, rjúpan á hreiðri en karrinn á varðbergi og vék ekki frá kellu sinni þó að Zontakonur nálguðust hana. 

Því næst var farið í Vogafjós og þar snædd dýrindis kjötsúpa sem óhætt er að mæla með. Þaðan var svo haldið í Jarðböðin vinsælu og það voru sælar og glaðar konur sem óku í Fuglasafn Sigurgeirs að Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit. Það er frábært safn í áhugaverðu húsi en auk allra fugla Íslands utan eins er þar bátasafn í sérstöku húsi auk safngripa sem tengjast silungsveiði í Mývatni bæði að sumri og í gegnum ís að vetri.   

   



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning