Zonta - 70 ár á Íslandi
Zontaklúbbarnir á Íslandi halda upp á 70 ára afmæli Zonta hreyfingarinnar hér á landi 8. nóvember. Zontasamband Íslands er
aðili að alþjóðlegri hreyfingu Zonta International sem er þjónustusamtök kvenna sem vinna saman að því að bæta stöðu
kvenna um allan heim. Marian De Forest var aðal hvatamaður að Zontahreyfingunni, sem stofnuð var 8. nóvember 1919 í Buffalo, New York fylki í
Bandaríkjunum.
Zontasamtökin eru einu alþjóðasamtökin sem byggja styrki sína eingöngu í þágu kvenna og voru stofnuð sem starfsgreinasamtök
kvenna til að styrkja þær konur sem voru í stjórnunarstöðum.
Zontahreyfingin hefur starfað í 70 ár á Íslandi og var Ísland sjöunda landið til að ganga í hreyfinguna en í dag eru 67 lönd
í hreyfingunni með 1200 klúbbum. Fyrsti klúbburinn á Íslandi var Zontaklúbbur Reykjavíkur en tveimur árum síðar var
stofnaður klúbbur á Akureyri. Í dag eru klúbbarnir átta en sá áttundi var stofnaður í Borgarfirði fyrr á þessu
ári.
Hugsjón Zonta
Zonta International stefnir að heimi þar sem mannréttindi og frelsi kvenna er tryggt og þeim í engu mismunað kyns
síns vegna, hvorki í lagalegu né stjórnmálalegu tilliti né hvað varðar menntun, heilbrigði og starfsréttindi.
Erlend verkefni
Zontahreyfingin vinnur að mörgum verkefnum í þróunarlöndum í samvinnu við Sameinuðu þjóðirnar.
Þar má nefna verkefni í Líberíu þar sem er verið að útrýma „obstetric fistula“ sem er skaði sem verður oft
hjá konum vegna erfiðra fæðinga. Einnig er unnið að því að koma í veg fyrir dauða nýbura og kvenna við fæðingar í
samvinnu við UNEPA þar í landi. Þá er verkefni í samvinnu við UNICEF til að hindra HIV smit frá móður til barns í Rwanda.
Verkefnið hefur gengið mjög vel og nú má búast við kynslóð sem er laus viði HIV veiruna. Samtökin eru einnig í samstarfi við UN
Women í verkefni þar sem unnið er að gera Guatimala City og San Salvador hættulausar borgir fyrir konur. Hér eru aðeins nefnd stærstu verkefni Zonta,
hreyfingin er að vinna að mörgum örðum mjög þörfum verkefnum í samstarfi við áðurnefnda aðila. Nánari upplýsingar eru
á http://www.zonta.org/
Sjóðir
Zontasystur vilja stuðla að bættum hag kvenna með hjálparstarfi og einnig með því að styrkja
efnilegar stúlkur til náms. Helstu sjóðir til náms eru: Amelia Earhart, Jane M Klausman, Women in Business Scolarships og Young Women in Public Affairs Awards.
Þessir sjóðir hafa komið mörgum efnilegum konum að gagni.
Íslensk verkefni
Zonta hefur einnig unnið að mörgum innanlandsverkefnum. Þar má nefna landssafnanir með sölu á gylltu
rósinni og nú síðast í samstarfi við Skotturnar með sölu á kynjagleraugum. Sú söfnun var til styrktar athvarfi fyrir þá
sem vilja losna úr vændi og mansal en athvarfið var opnað nú á haustdögum.
Landsfundur og formannafundur Zontasambands Íslands sendu frá sér ályktanir á þessu ári þar sem samtökin fordæmdu þá sem
kaupa vændi. Ennfremur þá sem dreifa og eða selja sjónvarpsefni þar sem aðgangur að klámstöðvum er innifalinn og þá sem dreifa
aðgangi að klámi á internetinu. Einnig hvatti sambandið dómstóla til að taka fast á þeim sem kaupa vændi og stunda mansal.
Klúbbarnir hér á landi vinna allir að markmiðum Zonta, taka þátt í erlendum verkefnum og hafa einnig sín heimaverkefni. Sem dæmi
má nefna að Kvennaráðgjöfin hefur fengið styrki til að byggja upp heimasíðu. Dyngjan, Kvennaathvarfið, Aflið, Sólstafir og
Stígamót hafa fengið styrki og einnig voru veittir styrkir í túlkaþjónustu fyrir konur sem hafa verið beittar ofbeldi.
Zontaklúbbur Reykjavíkur hefur boðað til afmælisfagnaðar í safnaðarheimili Háteigskirkju, þar sem ýmsar skemmtilegar uppákomur
verða. Zontakonur eru hvattar til að mæta og halda upp á þennan stóra viðburð í sögu Zonta á Íslandi.
Bryndís Bjarnarson
Svæðisstjóri