Umdæmi Alþjóðahreyfingar Zonta (Zonta International) eru 30 í heiminum. Ísland myndar 13. umdæmi ásamt Danmörku, Noregi og Litháen. Umdæmin eru stjórnunarlegur tengiliður milli klúbbanna og Zonta International. Til að gera starfið að stefnumálum Zonta markvissara er umdæmunum aftur skipt í svæði.
Umdæminu er stjórnað af umdæmisstjóra, varaumdæmisstjóra og svæðisstjóra fyrir hvert svæði umdæmisins, ásamt gjaldkera og ritara. Stjórnin ber stjórnunarlega ábyrgð á umdæminu. Upplýsingar um stjórnina er að finna á vef umdæmisins auk upplýsinga um nefndir umdæmisins og nefndarmenn. Umdæmisstjórnin heldur yfirleitt 5 stjórnarfundi á tveggja ára tímabili sínu. Þar eru rædd málefni umdæmisins, gefnar skýrslur og mörkuð stefna umdæmisins til tveggja ára í senn í samræmi við stefnumál Zonta International.
Umdæmisstjóri 2010-2012 er Ragnheiður Hansdóttir frá Zontaklúbbi Akureyrar og varaumdæmisstjóri er Britt W. Haave frá Sandnes í Noregi.
Svæðisstjóri og formaður Zontasambands Íslands fyrir 2010-2012 er Bryndís Bjarnarson frá Zontaklúbbinum Sunnu og varasvæðisstjóri er Sigrún Magnúsdóttir frá Zontaklúbbinum Þórunni hyrnu.
Hlutverk ofangreindra fulltrúa Íslands og Zonta International er að vinna að framgangi Zontahreyfingarinnar, standa vörð um grundvallarmál þau sem
unnið er að hverju sinni og stuðla að því eftir mætti að styrkja stöðu hreyfingarinnar á Íslandi.
Síðasta umdæmisþing var í Hróarskeldu 24. - 27. september 2009 og það næsta verður á Akureyri 2011.