Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Alþjóðahreyfingin

Alþjóðahreyfingin Zonta International
Zonta International er alþjóðleg þjónustusamtök stjórnenda í viðskiptum og starfsgreinum sem vinna saman að því að bæta stöðu kvenna. Marian De Forest var ásamt fjórum öðrum konum aðal hvatamaður að Zontahreyfingunni, sem stofnuð var 8. nóvember 1919 í Buffalo, New York fylki í Bandaríkjunum. Á ráðstefnu í Seattle árið 1930 varð Zonta International opinbert heiti samtakanna.  Fyrsti klúbburinn í Evrópu var stofnaður í Vínarborg árið 1930.

Á Norðurlöndunum voru fyrstu klúbbarnir stofnaðir í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi árið 1935 en fyrsti íslenski klúbburinn, Zontaklúbbur Reykjavíkur, var stofnaður árið 1941 og var nr. 7 í röðinni. Í upphafi  voru Norðurlöndin fimm, Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð öll í 13. umdæmi en árið 1986 var því skipt þannig að Finnland varð umdæmi 20, Svíþjóð 21, en hin þrjú löndin voru áfram umdæmi 13.  Litháen hefur einnig bæst við 13. umdæmi. Höfuðstöðvar Zonta International eru í Chicago í Bandaríkjunum.

Síðasta alþjóðaþing Zonta var í San Antonio í Texas 25. - 30. júní 2010.

Hugsjón Zonta
Zonta International stefnir að heimi þar sem mannréttindi og frelsi kvenna er tryggt og þeim í engu mismunað kyns síns vegna hvorki í lagalegu né stjórnmálalegu tilliti eða hvað varðar menntun, heilbrigði og starfsréttindi.

Markmið Zonta
Á næstu tveimur árum mun Zonta International leggja áherslu á fjögur meginmarkmið og beita sér að því að:

  • Bæta lagalega, pólitíska, efnahagslega, heilsufarslega, menntunarlega og faglega stöðu kvenna með þjónustuverkefnum og því að tala máli þeirra.
  • Stuðla að bættum skilningi manna á milli, góðvilja og friði með félagsskap stjórnenda í viðskipta- og atvinnulífi.
  • Halda á lofti virðingu fyrir mannréttindum og frelsi.
  • Vera sameinuð á alþjóðavettvangi og hlúa að siðgæðisviðmiðum, koma á þjónustuverkefnum og sýna stuðning og samheldni með þeim sem starfa fyrir samfélög sín, þjóðir og heiminn allan. 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning