Á vegum Zonta eru nokkrir sjóðir sem klúbbar heimsins leggja fé til:
- ZISVAW - Zonta International Strategies to Eradicate Violence Against Women
- Amelia Earhart
- YWPA - Young Women in Public Affairs Award
- Jane M. Klausman - Konur í viðskiptanámi
ZISVAW - Zonta International Strategies to Eradicate Violence Against Women
Sjóðurinn veitir fé til verkefna sem leitast
við að uppræta ofbeldi gegn konum og börnum. Sótt er um styrk til Zonta International og skulu verkefnin vera nákvæmlega skilgreind og geta einnig verið
unnin í samstarfi við önnur samtök sem vinna að skyldum verkefnum.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Zonta
International.
Amelia Earhart
Amelia Earhart sjóðurinn veitir 30-40 námsstyrki á ári og er hver styrkur 6000 USD.
Umsækjendur um styrkina skulu:
- hafa lokið háskólaprófi í flugvélaverkfræði, geimvísindum eða skyldum greinum
- hafa sýnt góðan námsárangur
- hafa stundað rannsóknir í minnst eitt ár
- láta fylgja í það minnsta eitt meðmælabréf frá leiðbeinanda sínum eða kennara
Umsóknum skal skila á sérstöku eyðublaði sem senda skal til Zonta International frá 1. maí til 1. nóvember ár hvert.
Nánari upplýsingar og eyðublöð er að finna á vef Zonta International.
Zontakonan Amelia Earhart
Amelia Earhart fæddist í Boston 24. júlí 1897 og var verkfræðingur og brautryðjandi á sviði geimvísinda. Árið 1932 varð
hún fyrst kvenna til að fljúga ein yfir Atlantshafið. Hún var ekki einungis brautryðjandi í flugi heldur líka fyrirmynd kvenna á sínu
sviði. Nafn hennar er sveipað dulúð vegna fráfalls hennar en hún hvarf á Kyrrahafi 1937 er hún reyndi fyrst allra hnattflug og var komin langleiðina
að því marki. Zontakonan frá Boston fannst aldrei þrátt fyrir mikla leit.
Nú virðast vera komnar fram nýjar upplýsingar um hvaf hennar. Í tímaritinu ZONTIAN í janúar 2002 birtist söguleg mynd. Á bak
myndarinnar ritaði ljósmyndarinn "Síðasta flugtak, Lae 1937". Myndin er af Amelia Earhart við flugvél sína fyrir flugtak frá Nýju-Gíneu.
Sonur ljósmyndarans hefur gefið alþjóðasamtökum Zonta fleiri myndir sem teknar voru á staðnum af afrekskonunni og flugvél hennar. Verður
sýning á myndefninu í aðalstöðvum Zonta í Chicago að gefnu þessu tilefni.
Ári eftir hvarf Amelia Earhart stofnaði Alþjóðahreyfing Zonta sjóð til minningar um hana. Styrkir úr sjóðnum eru veittir konum sem stunda
framhaldsnám í flugvélaverkfræði, geimvísindum eða skyldum greinum. Árið sem sjóðurinn var stofnaður var leitað logandi
ljósi að konu sem uppfyllti skilyrði til styrkþega en engin kona fannst þá með tilskilda menntun. En þetta breyttist. Nú hafa verið veittir 982
Amelia Earhart styrkir sem nema samtals 5 milljónum USD. Styrkþegar eru orðnir 664 frá 56 löndum. Árið 2002-2003 var ráðgert að veita 35 styrki
sem hver nemur 6. þús. USD.
Skilyrði fyrir styrkveitingu eru ströng og eingöngu afburðanemendur sækja um og hljóta styrkinn. Þeir þurfa að stunda nám við virta
háskóla og vera búnir að ljúka eins árs námi tengdu flugi/geimvísindum og hafa sýnt góðan árangur.
Zontaklúbbur Reykjavíkur hefur um langt árabil haft fastanefnd sem ber nafn Amelia Earhart. Verkefni nefndarinnar er að auglýsa Amalia Earhart styrkinn og kynna hann
í Háskóla Íslands, en það er eini háskólinn hér á landi sem útskrifað hefur kandídata í verkfræði.
Styrkurinn hefur verið vel kynntur í HÍ en vandinn er hve fáar konur innritast í verkfræðinám. Samt sem áður hafa tvær
íslenskar konur hlotið Amelia Earhart styrkinn. Er það hátt hlutfall miðað við framlag okkar til sjóðsins, en framlög Zontaklúbba
í sjóðinn eru frjáls og því óreglulegt hvað í hann rennur.
Anna Soffía Hauksdóttir hlaut styrkinn er hún var við framhaldsnám í Bandaríkjunum í verkfræði sem tengdist geimvísindum.
Hún er nú prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands. Áslaug Haraldsdóttir hlaut einnig styrkinn er hún stundaði
framhaldsnám í verkfræði í Bandaríkjunum. Nám hennar tengdist stýritækni í flugvélum og vinnur hún nú við
Boeing-flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum við þróun tækni í flugumferðarstjórn. Nú eru íslenskar konur við
nám sem vonir standa til að sækja muni um styrkinn og verða dæmdar verðugar til að hljóta hann.
Efst á síðu
YWPA - Young Women in Public Affairs Award
Hvert umdæmi Zonta velur einn styrkþega úr hópi umsækjenda og fær hann 500 USD styrk. Úr hópi styrkþeganna frá umdæmunum
þrjátíu eru síðan valdir fimm sem hver um sig fær einn alþjóðlegu styrkjanna sem eru 1000 USD hver.
Umsækjendur um styrkina skulu:
- vera á menntaskólaaldri (16-20 ára)
- hafa sinnt félagsstörfum
- hafa sýnt áhuga á sjálfboðastörfum sem lúta að því að bæta hag kvenna
Umsóknum skal skila til Zontaklúbba í umdæmunum í síðasta lagi 15. mars ár hvert.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef Zonta International.
JANE M. KLAUSMAN - Konur í viðskiptanámi
Fimm styrkþegar eru valdir úr hópi umsækjenda í umdæmunum þrjátíu og fá þeir 400 USD hver.
Zonta International velur síðan milli þessara umdæmisstyrkþega einn sem fær 4000 USD styrk.
Umsækjendur skulu:
- vera á mennta- eða háskólastigi og vera á öðru eða þriðja ári í viðskiptatengdu námi
- hafa sýnt góðan námsárangur
- skrifa ritgerð um námsáætlun
- láta fylgja tvenn meðmæli frá kennurum
- láta fylgja staðfest vottorð um þátttöku sína í námi
Umsóknum skal skilað til Zontaklúbbs á staðnum seinast 10. maí.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vef Zonta International.