Alþjóðleg þjónustuverkefni
Frá því að Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar hefur Zonta International Foundation unnið í nánum tengslum við stofnanir þeirra.
Mörg alþjóðleg verkefni Zonta hafa verið unnin í samvinnu við Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna (UNICEF) og Styrktarsjóð Sameinuðu þjóðanna fyrir konur (UNIFEM).
Með því að gerast aðilar að alþjóðlegu Zontahreyfingunni skuldbinda félagar sig til að styðja og leggja fé til
alþjóðlegra þjónustu- og mannúðarverkefna. Má reikna með að 2/3 hlutar af söfnunarfé klúbba renni til sérstakra
verkefna heima fyrir eða á landsvísu og 1/3 renni til alþjóðlegra verkefna. Allt eru það verkefni sem lúta að því að styrkja
stöðu kvenna, heilsu, efnahag eða menntun.
Alþjóðlegu þjónustuverkefnin fyrir tímabilið 2008-2010 sem samþykkt voru á heimsþingi Zonta í Rotterdam í júlí
2008 og ákveðið á heimsþingi í San Antonio í Texas að halda áfram með 2010-2012 eru:
-
AÐ KOMA Í VEG FYRIR ALNÆMISMIT FRÁ MÓÐUR TIL BARNS Í RWANDA
Í apríl og maí 1994 var um 1 milljón Rwandabúa eða 10% íbúanna myrt í þjóðarhreinsunum. Í kjölfarið geisaði borgarastyrjöld og misstu 3,7 milljónir manna heimili sín. Í stíðsátökunum var fjölmörgum konum nauðgað og við það smituðust þær af alnæmi. Mikill alnæmisfaraldur hefur geisað í Rwanda síðan og nú er svo komið að 190 þúsund Rwandabúar eru alnæmismitaðir, þar af 27 þúsund börn. 90% barnanna fengu alnæmismitið við fæðingu eða brjóstagjöf. Með ráðgjöf til kvenna og prófunum á alnæmismiti má koma í veg fyrir smit til barnanna. Verkefninu sem Zonta mun leggja lið er ætlað að veita alnæmismituðum, þunguðum konum aðgang að mæðravernd og læknishjálp við fæðingu sem kemur í veg fyrir að börnin smitist af móðurinni. Eftir fæðingu munu konurnar fá ráðgjöf m.a. um brjóstagjöf og annað sem lítur að því að tryggja heilsu barns og móður eftir fæðinguna.
-
ÖRUGGAR BORGIR FYRIR KONUR Í GUATEMALA CITY Í GUATEMALA OG SAN SALVADOR Í EL SALVADOR
Ofbeldi í borgum Suður Ameríku fer vaxandi á sama tíma og þær stækka. Borgarastyrjaldir, fátækt, atvinnuleysi og eiturlyfjasala næra ofbeldistilhneigingar samfélagsins. Fjöldi morða sem framin eru eru 114% yfir meðaltali á heimsvísu. Hlutskipti kvenna við þessar aðstæður er bágborið og þær þurfa að þola hlutskipti hinna kúguðu í mörgum Suður Amerískum samfélögum. UNIFEM mun vinna gegn ofbeldinu með því að kynbinda það og styrkja rétt kvenna til að vera virkir þegnar í samfélaginu. INIFEM mun í samstarfi við yfirvöld á hverjum stað stuðla að því að gera borgirnar öruggari fyrir konur fyrir tilstuðlan kvenna. -
FÆKKUN FISTULA Í KVENLÍFFÆRUM KVENNA Í LIBERIU
Liberia er að jafna sig eftir borgarastyrjöld. Eftir 15 ára bardaga er heilsugæsla landsins í rúst og fjölmargir starfsmenn hennar flúnir úr landi. 578 af hverjum 100 þúsundum fæðandi kvenna þar deyja og enn fleiri þurfa að þola alvarlega fylgikvilla. Einn sá alvarlegasti er þegar gat kemur á fæðingarveginn og inn í blöðruna við fæðingar sem ganga hægt og veldur stöðugum þvagleka með öllum þeim óþægindum sem því fylgja. Konur sem svona er komið fyrir eru oft einangraðar í samfélaginu því þær geta illa leynt ástandi sínu vegna lyktar. 57% þeirra eru yfirgefnar af eiginmönnum sínum og eiga erfitt með að sjá sér farborða. Einföld læknisaðgerð getur bætt úr ástandinu en konur í Liberiu hafa ekki handbæra þá 300 USD sem aðgerðin kostar. Verkefnið gengir út á það að þjálfa lækna í því að gera aðgerðirnar og bjóða konum upp á þær þeim að kostnaðarlausu ásamt lyfjum og aðstöðu sem til þarf. Einnig er stefnt að því að hjálpa konunum til að taka aftur virkan þátt í samfélaginu sem þær hafa verið útskúfaðar frá að aðgerð lokinni.
Nánari upplýsingar um alþjóðlegu þjónustuverkefnin er að finna á vef Zonta International.