Zontasamband Íslands
Zontasamband Íslands er samband íslenskra Zontaklúbba, sem tilheyra 13. umdæmi, ásamt Danmörku, Noregi og
Litháen. Ísland er í svæði 3 innan umdæmisins. Klúbbarnir á Íslandi vinna náið saman og halda landsfund annað hvert ár.
Þeir eru hver og einn með ýmsar nefndir sem sinna ákveðnum verkefnum. Vinna í nefndunum styrkir samvinnu og samheldni félaganna og eykur áhuga
á málefnum þeim sem klúbbarnir berjast fyrir.
Félagar í klúbbunum vinna í anda Zontahreyfingarinnar að því að styrkja stöðu kvenna. Það gera þeir m.a. með því að mynda tengslanet sín á milli, en félagarnir eru margir í leiðandi stöðum í atvinnulífinu. Félagarnir styðja verkefni sem lúta að framfaramálum og velferð kvenna og velja sér verkefni hver á sínu svæði. Verkefnin verða að samræmast stefnumálum Zontahreyfingarinnar og styrkja stöðu kvenna, félagslega, efnahagslega og heilsufarslega.
Klúbbarnir velja félaga eftir ákveðnu skráningarkerfi (ZI Classification). Reynt er að fá áhrifakonur úr fjölbreyttum starfsgreinum í klúbbana.
Landsfundur er æðsta vald í málefnum Zontasambandsins Íslands. Á landsfundi er kosinn svæðisstjóri og varasvæðisstjóri. Formenn Zontaklúbbanna eiga sæti í stjórn og skipta þar með sér verkum. Svæðisstjóri er kjörinn formaður sambandsins til tveggja ára. Varasvæðisstjóri er einnig kjörinn til tveggja ára og tekur við af formanni þegar hans kjörtímabil rennur út. Svæðisstjóri efnir til formannafundar einu sinni til tvisvar á ári.
Meginskyldur Zontasambands Íslands eru þátttaka í erlendu samstarfi. Zontahreyfingin er alþjóðleg með ákveðin markmið sem allir félagarnir leitast við að styðja og koma í framkvæmd. Þar sem Zonta er alþjóðlegur félagsskapur er áhersla lögð á að forystan og félagarnir fylgist með og taki þátt í alþjóðlegu starfi.
Hagnýtar upplýsingar um Zontahreyfinguna er að finna í bæklingnum Hvers vegna skyldi ég gerast Zontakona?