Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Verkefni


Klúbburinn greiðir árlega til alþjóðasamtakanna, sem styrkja ýmis brýn verkefni til hjálpar konum og börnum í heiminum í samvinnu við alþjóðleg hjálparsamtök og stofnanir. Einnig styrkir klúbburinn litla stúlku í Mosambik gegnum SOS barnahjálpina.

Innlend verkefni hafa verið þau að styrkja heilbrigðisstofnanir og sambýli á Suðurlandi svo og konur á svæðinu. Klúbburinn er í hollvinasamtökum Fjölbrautaskóla Suðurlands og veitir einnig íslenskuverðlaun tvisvar á ári við útskrift skólans.

Einnig hefur klúbburinn styrkt Kvennaathvarfið og Stígamót.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning