Fundarstaður og tími
Fundir eru haldnir annan miðvikudag hvers mánaðar á hinum ýmsu stöðum.
Sunnur héldu sitt árlega og mergjaða skvísukvöld í gær og fór fögnuðurinn fram að Harðarbóli,
sal hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ. Þetta árið var kúrekaþema sem allir tóku virkan þátt í og gaf
það skemmtilegan svip yfir salinn. Reyndar slæddist einn indíanahöfðingi með en þar sem sú er fyrrum formaður klúbbsins var henni
fyrirgefið uppátækið!
Matseðillinn var girnilegur að vanda en í forrétt var matarmikil og himnesk sjávarréttasúpa, í aðalrétt var nautalund með argentínsku ívafi og kjúklingur af steikarhlaðborði með ljúffengu meðlæti. Í eftirrétt fengu kúrekaskvísurnar síðan Pavlovu að hætti Nigellu með kaffi og konfekti.
Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum, tískusýning með íslenskri
hönnun frá BIRNU og Húfum sem hlæja, síðan hélt Anna Kristín Newton réttarsálfræðingur
fyrirlestur um hrós og gagnrýni. Fastur liður á skvísukvöldi er að veita nokkrum systrum fegurðardrottningaborða og hlutu fimm Sunnur
þann heiður. Að endingu var hið margrómaða happadrætti með veglegum vinningum í tugatali sem féll vel í kramið. Sem sagt vel
heppnað og ánægjulegt skvísukvöld Sunnusystra og gesta.
Þriðji fundur vetrarins var haldinn miðvikudagskvöldið 11. nóvember í félagsmiðstöðinni Bólinu við Lágafellskóla í Mosfellsbæ þar sem formaður klúbbsins, Bryndís Bjarnason, stýrir málum. Við fengum alveg hreint dásamlegan og meinhollan mat frá henni Lukku (Unnur Guðrún Pálsdóttir), sem rekur hollustufyrirtækið Happ ehf., sjá heimasíðu www.happ.is. Lukka hélt okkur síðan fyrirlestur um mat og hollustu og sköpuðust miklar umræður í kjölfarið.
Við Sunnur vorum svo lánsamar að tvær nýjar systur bættust í hóp okkar á fundinum, þær Hrönn Ingólfsdóttir og Guðrún Ágústa Ólafsdóttir og buðum við þær hjartanlega velkomnar í klúbbinn. Því næst greindi formaður okkur frá ferð sinni á svæðisþingið í Roskilde og umræður urðu um heimsþingið sem verður í Texas á næsta ári. Að endingu sá Inga Jóna Óskarsdóttir um "púltið tamið" þar sem hún kom upp og sagði okkur frá sínum æskuslóðum á Seyðisfirði og sýndi forvitnilegar myndir með erindi sínu.
Nú hafa Sunnur hafið nýtt starfsár líkt og aðrir Zontaklúbbar hér á landi og er dagskrá vetrarins jafn fjölbreytt og spennandi nú sem áður. Við hittumst síðastliðið miðvikudagskvöld þann 9.9. á Kaffi Loka á Skólavörðuholti og var vel mætt og vel hlýtt á fundarsköp á meðan mexíkósku gúllassúpunni og ostakökunni eftir á var rennt niður með kaffinu.
Lesa meira