Heilsufæði og nýjir félagar

Þriðji fundur vetrarins var haldinn miðvikudagskvöldið 11. nóvember í félagsmiðstöðinni Bólinu við Lágafellskóla í Mosfellsbæ þar sem formaður klúbbsins, Bryndís Bjarnason, stýrir málum. Við fengum alveg hreint dásamlegan og meinhollan mat frá henni Lukku (Unnur Guðrún Pálsdóttir), sem rekur hollustufyrirtækið Happ ehf., sjá heimasíðu www.happ.is. Lukka hélt okkur síðan fyrirlestur um mat og hollustu og sköpuðust miklar umræður í kjölfarið.
Við Sunnur vorum svo lánsamar að tvær nýjar systur bættust í hóp okkar á fundinum, þær Hrönn Ingólfsdóttir og Guðrún Ágústa Ólafsdóttir og buðum við þær hjartanlega velkomnar í klúbbinn. Því næst greindi formaður okkur frá ferð sinni á svæðisþingið í Roskilde og umræður urðu um heimsþingið sem verður í Texas á næsta ári. Að endingu sá Inga Jóna Óskarsdóttir um "púltið tamið" þar sem hún kom upp og sagði okkur frá sínum æskuslóðum á Seyðisfirði og sýndi forvitnilegar myndir með erindi sínu.