Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Mikið fjör hjá kúrekaskvísum

Kúrekaskvísur í stuði
Kúrekaskvísur í stuði

Sunnur héldu sitt árlega og mergjaða skvísukvöld í gær og fór fögnuðurinn fram að Harðarbóli,
sal hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ. Þetta árið var kúrekaþema sem allir tóku virkan þátt í og gaf það skemmtilegan svip yfir salinn. Reyndar slæddist einn indíanahöfðingi með en þar sem sú er fyrrum formaður klúbbsins var henni fyrirgefið uppátækið! 

Matseðillinn var girnilegur að vanda en í forrétt var matarmikil og himnesk sjávarréttasúpa, í aðalrétt var nautalund með argentínsku ívafi og kjúklingur af steikarhlaðborði með ljúffengu meðlæti. Í eftirrétt fengu kúrekaskvísurnar síðan Pavlovu að hætti Nigellu með kaffi og konfekti.

Skemmtiatriðin voru ekki af verri endanum, tískusýning með íslenskri
hönnun frá BIRNU og Húfum sem hlæja, síðan hélt Anna Kristín Newton réttarsálfræðingur fyrirlestur um hrós og gagnrýni. Fastur liður á skvísukvöldi er að veita nokkrum systrum fegurðardrottningaborða og hlutu fimm Sunnur þann heiður. Að endingu var hið margrómaða happadrætti með veglegum vinningum í tugatali sem féll vel í kramið. Sem sagt vel heppnað og ánægjulegt skvísukvöld Sunnusystra og gesta.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning