Zonta á Íslandi

Zonta á Íslandi

Fréttir

Spennandi vetur framundan hjá Sunnum

Nú hafa Sunnur hafið nýtt starfsár líkt og aðrir Zontaklúbbar hér á landi og er dagskrá vetrarins jafn fjölbreytt og spennandi nú sem áður. Við hittumst síðastliðið miðvikudagskvöld þann 9.9. á Kaffi Loka á Skólavörðuholti og var vel mætt og vel hlýtt á fundarsköp á meðan mexíkósku gúllassúpunni og ostakökunni eftir á var rennt niður með kaffinu.

Fundarstjóri var varaformaður klúbbsins, Berglind Víðisdóttir, og fórum við meðal annars yfir dagskrá vetrarins, fyrirhugaða ferð formanns til Roskilde, inntöku nýrra félaga og greiðslufyrirkomulag á ársgjaldi félaga klúbbsins. Stjórnin ákvað að endurvekja þann góða sið að hafa púltið tamið og að þessu sinni kynnti Helga Stefánsdóttir, forstöðumaður framkvæmdasviðs Hafnarfjarðarbæjar, okkur fyrir nýstikuðum gönguleiðum í nágrenni Hafnarfjarðar sem var mjög fróðlegt.

Dagskrá vetrarins er sem fyrr sagði áhugaverð en næst á dagskrá í október er árleg óvissuferð klúbbsins, í nóvember er okkur boðið af formanni í félagsmiðstöðina Bólið í Mosfellsbæ, þá er jólafundurinn á sínum stað, vinnufundur í upphafi árs og því næst sameiginlegur fundur. Skvísukvöld klúbbsins verður að þessu sinni 10. mars og er þess beðið með eftirvæntingu. Í kjölfarið verður bleikt kvöld og að endingu aðalfundur í maí þannig að nú verða Zontadagsetningar vetrarins teknar frá í dagatalinu!



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning