Frá stofnun Zontaklúbbsins Sunnu í Hafnarfirði árið 2003 höfum við styrkt ýmis
verkefni hér heima og að heiman. Við höfum meðal annars styrkt ungar konur í Yemen til mennta og gefið sérútbúnar töskur fyrir
ljósmæður í Afghanistan.
Hér innanlands hefur Zontaklúbburinn Sunna veitt ýmsum verkefnum lið. Síðastliðin tvö
ár hefur Kvennaráðgjöfin hlotið styrk frá okkur þar sem konur sem eiga um sárt að binda geta fengið ókeypis
lögfræðiráðgjöf, sjá á http://www.kvennaradgjofin.is/
Við höfum veitt samtökunum “Blátt áfram” styrk í baráttu þeirra gegn kynferðislegri misnotkun á börnum. Verkefnið
“Gott útlit – betri líðan” fékk einnig styrk frá Sunnum en um er að ræða óhefðbundna hópmeðferð fyrir konur
sem miðar að því að hjálpa þeim að takast á við breytt líf og breyttar aðstæður eftir krabbameinsmeðferð.
Landssöfnun Zontaklúbbanna árið 2008 var sala Zontarósarinnar sem er merki Zonta. Ágóði landssöfnunarinnar fór til
Stígamóta og verkefnis þeirra “Stígamót á staðinn” sem miðar að því að veita konum á landsbyggðinni
aðgang að þjónustu Stígamóta.